Íslendingar í Perth halda partý

Í kvöld munu Fjóla (26) og Grétar (26) halda svaka partý. Það eru sterkar líkur á því að það verði mikið stuð, enda eru þau bæði þekkt fyrir lítið annað en fjör & gleðskap.
Í samtali við Fjólu í morgun sagðist hún gera ráð fyrir fjölmenni í kvöld og taldi jafnvel sterkar líkur á húsfylli. Hún sagðist reyndar hafa áhyggjur af stólaleysi og vonaðist til að gestir myndu hafa vit á því að taka með sér stóla og önnur eins húsgögn.
Aðspurð sagðist Fjóla ekki hafa áhyggjur af aldrsaukningunni og benti hún á að all nokkrar rannsóknir sýna að konur eru á kynferðislegum hátindi í kringum 27 ára aldurinn. "Hvert ár sem líður þýðir bara innlegg í reynslubankann fyrir mér", sagði Fjóla hlæjandi.
Heiðursgestir kvöldsins koma úr mörgum áttum. Ása og Helga María eru komnar til Perth alla leið frá Íslandi til þess eins að taka þátt í fögnuðinum og Sidney-Niel lendi á Perth domestic airport í gærmorgun.
Ekki náðist í Grétar í morgun.
Captain B, Perth
0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home