Captain B

15.11.05

Loksins! Loskins!

onei, ekki er ég búin með ritgerðaflóðið... á enn eftir 2 ritgeðir :S (á 3 dögum)

En sumarið er komið. Í dag leið mér í fyrsta skipti eins og ég væri í Ástralíu. Mér brá svakalega þargar ég labbaði út í garð í morgun og gekk hreinlega inn í hitakassa. Ég er ekki alveg með það á hreinu hvað er heitt úti en það er allavega yfir 30 gráður, jafnvel 33 gráður. Ég þurfti að labba niðrá löggustöð áðan og það var varla hægt vegna hita. En er að fíl' etta. Verst að ég get ekki einu sinni lesið heimildir út því maður verður svo máttlaus af hita og vill bara leggja sig. Fjóla og katrín eru báðar búnar í prófunum sínum og eru á þessari stundu í sundlaugaparý hjá skólavinkonu sinni. Frekar ósanngjarnt! En á föstudaginn verð ég að skila af mér ritgerðunum sem þýðir að ég get gert hvað sem mér sýnst frá þeim degi og þangað til ég fer heim í frostið. Það verður bara Little Creatures og ströndin alla daga... og kannski dýragarður, scooter og second hand shopping.

Cheers!