Captain B

29.7.06

Orri Victor Rosman

Jaeja gott folk.

Litli gaurinn nennti ekki ad bida lengur i vatnslausum belgnum og kaus frekar ad koma heldur betur snemma i heiminn. Faedingartiminn var 1:32 am (eftir midnaetti), 27.07.2006. Hann var ekki nema 29 vikna, 1315 gr og 39 cm en samt fannst mer hann ansi mikill og stor thegar eg sa hann i fyrsta skipti!!!!

Honum gengur mjog vel og neitadi strax ad lata einhverjar velar anda fyrir sig. Hann er horkutol, enda drekkur hann bara mjolkina fra mommu sinni!! :) Hann er reyndar eins og er adeins ad sola sig i ljosum thvi likaminn er ekki enntha buinn ad brjota nidur efnin og losa thau ut i bleyjuna hans (sem sagt, hann er med sma gulu eins og er). Eg fekk ad halda strax a honum i gaer og hann var greinilega ad fila thad i taetlur thar sem hann steinsofnadi eins og skot.

Ef framhaldid mun vera eins gott eins og undanfarnir timar|dagar hafa verid, faer hann ad fara heim eftir cirka 9-10 vikur. Eg fae hins vegar liklegast ad fara heim a morgun og tha get eg sett myndir inn a heimasiduna hans: rosman.barnaland.is

Eins og titillinn a thessari faerslu gefur til kynna er litli gaurinn minn kominn med nafn: Orri Victor Rosman. Orranafnid er ekki alveg ut i blainn, thad er god saga a bakvid thad sem forvitnir vinir og fjolskyldumedlimir fa kannski ad vita sidar. Victor er millinafn Astraliu-afa hans og adalnafn Astraliu langafa hans og adal nafn uppahalds fraenda mins i ollum heiminum, hans Viktors Eli!! Rosman-eftirnafnid er sidan fjolskyldunafnid sem Orri faer fra pabba sinum, honum Benjamin Lloyd Rosman.

Skal!

4.7.06

Afmælispartý

Var að koma úr frábæru 25 ára afmælispartý/lautarferð í miðborg Perth.
Til hamingju Benjamin! :)





23.6.06

Vú-hú

Í gær/nótt stóð ég fyrir mjög furðulegu partý. Ég byrjaði á því að fara að sofa klukkan ellefu og stillti vekjaraklukkuna á tíu mínútur í þrjú. Þegar klukkan byrjaði að hringja fór ég og vakti Fjólu sem svaf inni í gestaherbergi og síðan fimm mínútum seinna kom restin af liðinu. Þetta var semsé miðnætur fótboltapartý með meiru - Ástralía vs. Króatía.

Þvílíkur leikur. Það ætlaði allt að verða vitlaust í lokin þegar Ástralirnir voru að rembast við að halda jafnteflinu, sem tókst! :) og þar með er Ástralía komin áfram í aðra umferð. Húrra

5.5.06

Verksmiðjan Bugðutanga 34 - Gallipoli street - hraðferð!

Þeir sem keyra út böggla hérna í hverfinu eru ábyggilega farnir að grafast fyrir um hver þessi mrs. Helga Friðriksdóttir er. Það líður nefnilega varla orðið sá dagur að ekki sé pakki úti á stétt þegar ég opna útidyrahurðina á morgnana ("ræsk" í hádeginu). Það kæmi mér allavega ekki á óvart að ég væri komin á einhvern lista hjá stjórnvöldum, einhvern svona "border security" lista... þar sem þessar tíðu sendingar til mín frá múttu líta svoldið grunsamlega út.


Fengum gardínur + fylgihluta-sendingu frá Íslandi!

og lopapeysur frá Gallerí Gunnu"


Hérna má sjá allar lopapeysurnar sem hafa laumað sér í böggla undanfarið


21.4.06

Heimalegur eldhúsveggur
























Já, ég tók mig til og keypti töflu til að hengja upp allar þær myndir, af fjölskyldu og vinum, sem ég á.

Þeir sem eru ósáttir, þá annaðhvort við þá mynd sem nú þegar hangir uppi eða vegna skorts á myndum af viðkomandi, geta sent mér ljósmyndir í pósti. Heimilsfangið er uppi til hægri.

20.4.06

ROKK-lingar




Þessir spræku gaurar skelltu sér á einhvers slags Opeth-tónleika nú fyrir stundu. Tveir sveitakallar komu alla leið frá Mount Barker (Heimabær Benna) til að hlusta á harðkjarnann. Annar þeirra var ansi rokkaralegur, íkæddur alvöru Iron Maiden bol sem greinilega var nýbúið að klippa ermastúfana af. Greinilega mikið á sig lagt til að fá rétta lúkkið. Fjóla skutlaði síðan Neil í geimið þar sem hann deilir þessu afar undarlega áhugamáli með Benna.

16.4.06

GLEÐILEGA PÁSKA



Mamma, pabbi, Sturla, Auður, Viktor Elí, Guðrún Jóna, Brynja og co, Tinna og co, Ragga og co, Hafdís og co, Ausa og co, ömmur & afar, Bólfélagar nær og fjær,nýjir og gamlir og allir vinir mínir í Ástralíu!!!! Gleðilega páska allir saman. Þessa páska fékk ég 2 páskaegg og 2 páskakanínur. Vei! Eitt frá Íslandi, eitt hand"smíðað". Hef aldrei uppskorið svona vel áður. Klukkan er að verða hálf þrjú og ég er bara búin að snmakka pínu af m&m egginu mínu. Hef aldrei verið svona slök í páska-súkkulaðiátinu! Bless bless.